Ég elska vatnsmelónur. Þær eru virkilega eitt það besta sem ég fæ, hvort sem ég borða þær í bitum, heilar eða bý mér til safa úr þeim. Í þetta sinn ákvað ég að gera safa.
Ég notaði hálfa melónu. Hreinsaði steinana úr henni og skellti "kjötinu" í blandarann
Þegar safinn var orðinn silkimjúkur helti ég honum í fallegt glas og naut þess að drekka hann úti í góða veðrinu.
Helga María