Þessi hráfæðiréttur minnir mikið á þennan klassíska karrýrétt sem við þekkjum öll.
"Núðlurnar"
Kúrbítur
Rauð paprika
Tvær gulrætur
Púrrulaukur
Yfirleitt nota ég matvinnsluvélina til þess að búa til kúrbítsnúðlur en í þetta sinn nennti ég ekki að taka hana fram og notaði grænmetisskrælara.
Ég reif gulræturnar niður og skar afnganginn af grænmetinu rosalega þunnt.
1 Mangó
1/2 - 1 bolli kókosvatn (fer eftir stærðinni á mangóinu)
1/2 tsk karrý
1/4 tsk cumin
Ferskur chilipipar eftir smekk
Örlítið salt - alls ekki nauðsynlegt.
Setjið allt í matvinnsluvélina og blandið saman. Ég yfirleitt myndi nota vatn úr ferskri kókoshnetu en þær voru ekki til í Melabúðinni svo ég keypti mér bara kókosvatn í fernu.
Öllu blandað vel saman þar til sósan er orðin silkimjúk.
Að lokum stráði ég nokkrum kókosflögum yfir núðlurnar sem gerði þær enn betri.
Ég mæli með því að fólk prófi að gera svona hráfæðisrétti af og til. Þeir eru svo léttir í magann og koma oftar en ekki á óvart hvað bragðið varðar.
Helga María