Í dag er yndislega fallegur haustdagur. Sólin skín og maður getur ekki annað en brosað. Ég átti frábæra helgi og vonandi verður komandi vika eins góð. Ég vaknaði í ótrúlega góðu skapi og ákvað að í dag myndi ég gera mér eitthvað gott í hádegismat. Ég fékk kúrbítsbát á gló um daginn og ákvað að gera mína útgáfu af svoleiðis.
Kúrbítur
Hálf paprika
Hálfur tómatur
Fjórir til fimm sólþurrkaðir tómatar
Hálft mangó
Púrrulaukur eftir smekk
Ferkst kóríander eftir smekk
Sósan:
Tahini
Vatn
Sítrónusafi
Salt
Næst skar ég niður allt grænmetið og mangóið og setti inní kúrbítsbátana.
Ég gerði uppáhalds tahini sósuna mína. Blandaði saman matskeið af tahini, smá vatni, smá sítrónusafa og salti og helti yfir bátana.
Ég get ekki lýst því hvað þetta var gott á bragðið. Kom mér ekkert smá mikið á óvart.
Helga María