Í dag ákvað ég að búa til svartbaunaborgara. Uppskriftina fékk ég frá John sem er með the vegan zombie síðuna á youtube. Allar uppskriftir sem ég hef prófað frá honum hitta algjörlega í mark. Ég breytti uppskriftinni þó örlítið.
Hráefni:
4-5 litlar kartöflur, skornar í bita
1 teskeið koriander
1 teskeið Lamb islandia kryddið frá pottagöldrum
1 teskeið rauðar chilli flögur
Salt og pipar eftir þörfum
1 meðalstór laukur, saxaður
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 matskeið graskersfræ
1 og 1/2 Bolli svartar baunir
1/2 Bolli Mozzarella osturinn frá daiya (Má sleppa)
2 Matskeiðar púðursykur
1/2 Bolli brauðrasp
Hveiti til að velta borgurunum uppúr
Hitið olíu á pönnu. Skerið kartöflurnar niður í bita og byrjið að steikja þær. Bætið kryddinu útí og steikið í 5 mínútur. Næst bætiði lauknum og hvítlauknum útí. Seinast bætiði útí graskersfræjunum og látið malla á pönnunni þangað til kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Passið ykkur að láta þær ekki verða brúnar og stökkar. Þegar þær eru tilbúnar setjið allt í stóra skál og látið kólna í svona tíu mínútur.
Mér finnst lang best að mauka þetta bara saman með höndunum.
Ég velti borgurunum uppúr smá hveiti til að gera þá meira stökka. Ég steikti þá í um það bil 8 mínútur á hvorri hlið, en þið finnið bara hvað hentar ykkur.
Ég var ótrúlega ánægð með þessa uppskrift. Klárlega bestu grænmetisborgarar sem ég hef smakkað.
Helga María.