Labels

Friday, February 15, 2013

Rauðrófu- og eplasafi



Mér finnast eplin hjá Frú Laugu mjög góð. Í gærmorgun vaknaði ég eldhress og ákvað að gera mér epla- og rauðrófusafa í tilefni Valentínusardagsins. Það er til virkilega góð safapressa á heimilinu og ég reyni að vera dugleg að búa mér til allskonar safa.


Hráefni:

6 Epli 
2 Rauðrófur

Epli og rauðrófur gera alveg einstaklega góðan safa. Svo skemmir ekki fyrir hvað hann er ótrúlega hollur. Ég bar safann fram í rómantískum glösum í tilefni valentínusardagsins


Vonandi hafið þið notið góða veðursins. Það hef ég allavega gert. Eigið þið góða helgi kæru vinir.

Helga María