Labels

Tuesday, June 3, 2014

Grænn smoothie með kóksmjólk


Ég er orðin alveg sjúk í það að nota vínber í smoothie. Mér finnst mjög gaman að prófa mig áfram í smoothie gerð og útkoman í morgun var frekar skemmtileg.
Ég ákvað að breyta aðeins til og nota kókosmjólk. Ég sver það mér finnst hún góð í nánast allt.
Fyrir þá sem sakna þess að nota skyr og svoleiðis í drykkina sína er mjög hentugt að nota kókosmjólkina. Hún gefur mjög góða og mjúka áferð sem minnir á skyr boozt.

Hráefni:
2 bananar
Handfylli frosin vínber
Handfylli spínat
1-2 kiwi
Ein 400 ml dós kókosmjólk


Það var nú ekki slæmt að drekka þennan úti í góða veðrinu. Gefur manni gott start út í daginn. Mér finnst mjög mikilvægt að borða hollan og góðan morgunmat. Þá er svo mikið auðveldara að halda áfram að borða hollt yfir daginn. Í mínu tilfelli allavega :)

Helga María