Þessi súpa er æðisleg. Hún er næringarrík, bragðgóð og rífur dálítið í. Fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir krydduðum mat er ekkert mál að nota nýrnabaunir í vatni í staðinn fyrir chilibaunirnar.
Hráefni
- 1 stór kartafla
- 1 gulur laukur
- 4 tómatar
- 1 hvítlauksgeiri
- 1 dós af nýrnabaunum í chilisósu - ég notaði þessar
- 1 krukka af tómatsúpu frá Himnesk
- 1 bolli maísbaunir - ég nota lífrænar frosnar baunir
- 4 bollar af vatni
- 1 grænmetisteningur
- 1 tsk af kryddblöndunni "bezt á flest"
- 1 tsk salt
- 1/2 tsk cumin
Aðferð
1. Skerið kartöflurnar og tómatana niður smátt, saxið laukinn og rífið hvítlaukinn.
2. Setjið í pott ásamt vatninu og leyfið því að mýkjast í nokkrar mínútur
3. Bætið tómatsúpunni, chili baununum, grænmetiskraftinum og kryddnum útí og leyfið súpunni að malla í sirka korter
4. Þegar korter er liðið bætið maísbaununum útí og sjóðið í 5 mínútur.

Ég mæli með því að bera súpuna fram með nachos flögum. Ég nota þessar frá Way better snacks.
Helga María