Labels

Tuesday, January 1, 2013

Nýársvöfflur


Gleðilegt nýtt ár elsku vinir. Ég vona að árið 2012 hafi verið ykkur ánægjulegt og það nýja verði enn betra. Mér þótti árið yndislegt og það gerðist margt frábært.
Ég finn á mér að 2013 verður gott ár. Það var því ekki slæmt að byrja það á því að baka vöfflur í nýja vöfflujárninu sem ég fékk í jólagjöf. Þessar vöfflur eru ótrúlega góðar og uppskrifin mjög auðveld og fljótleg.


Hráefni:
3 Bollar hveiti
1/4 Bolli sykur
4 tsk lyftiduft

1 og 1/2 tsk salt
3/4 Bolli olía
2 tsk vanilludropar
2 Dósir kókosmjólk (miðað við 400ml dósir)

1/2 Bolli hrísmjólk.

Ég byrjaði á því að blanda saman þurrefnunum í skál. Ég átti ekki nógu mikið hveiti svo ég varð að vinna úr því sem til var. Ég endaði á því að nota hveiti, spelt og smá hveitiklíð.
Því næst blandiði í aðra skál kókosmjólkinni, olíunni, vanilludropunum og rísmjólkinni.
Ég hellti blöndunni ofan í skálina með þurrefnunum. Blandaði öllu saman en passaði að hræra ekki of mikið í þessu því þá verða vöfflurnar stífar. Deigið má vera kekkjótt.
Þetta deig er rosalega þykkt. Vöfflurnar verða því stökkari fyrir vikið.


Vöfflujárn eru mismunandi svo þið verðið að finna út úr því hversu mikið deig þið þurfið að nota í hverja vöfflu.  Mitt járn tekur svona rúmlega hálfan bolla. Ég set það í miðjuna og breiði svo úr því þannig að það fari alveg útí hornin.
Mér finnst allt annað að baka vöfflur í svona belgísku vöfflujárni. Þær verða þykkari og stökkari. Svo eru þær líka mun flottari að mínu mati.


Ég ætla að enda á þessu æðislega lagi með the beach house. Þessi hljómsveit er í miklu uppáhaldi hjá mér og nýji diskurinn þeirra, Bloom er ótrúlegur.



Helga María