Labels

Monday, June 9, 2014

Sumarsmoothie með greip og hindberjum


Þessi smoothie er kannski ekki fyrir alla. Þeim sem finnst greip vont mun eflaust ekki þykja drykkurinn góður þar sem hann inniheldur heil fjögur rauð greip og bragðið af þeim þess vegna mjög áberandi. Hinsvegar er drykkurinn tilvalinn fyrir þá sem þykir greip algjör snilld eins og mér. Ég ætla að skora á alla sem hafa aldrei lagt í það að smakka ávöxtinn að prófa þennan.

Innihald:
4 rauð greip
safi úr 1/2 lime
1 lúka frosinn ananas
1 lúka frosin hindber
Fersk minta

Drykkurinn er örlítið súr og bragðið af greipinu er frekar sterkt. Þar sem mér finnst greip mjög gott naut ég þess í botn að sötra hann úti á palli í sólinni. Hindberin gefa þessu svo fallegan lit og þegar maturinn minn er fallegur verður bragðið sjálfkrafa betra. 

Helga María