Labels

Saturday, August 30, 2014

Gulrótarsúpa og klassískur Hummus






Í morgun rak ég augun í fullan poka af lífrænum gulrótum sem ég keypti mér í síðustu viku. Þær voru svo fallega skærar og fínar og ég hugsaði nánast ekki um annað í dag en það að ég yrði að búa til eitthvað gott úr þeim.
Þar sem ég er mjög hrifin af súpum var fátt annað í stöðunni en að útbúa bragðgóða gulrótarsúpu. Ég átti nýbakað brauð úr bakaríi hérna í grendinni og ákvað því að búa mér til uppáhalds hummusinn minn líka. Mér hefur ekki gefist mikill tími uppá síðkastið til að elda mér almennilegan kvöldmat svo ég naut þess gríðarlega og borðaði hægt og vel.
 



Gulrótarsúpa:
5 bollar niðurskornar gulrætur
2 smátt skornir gulir laukar
2-3 saxaðir hvítlauksgeirar
1 msk engifer
1/2 L grænmetissoð
1 dós kókosmjólk
salt og pipar eftir smekk

Olífuolía til steikingar

1. Ég byrjaði á því að steikja laukinn og hvítlaukinn í olíunni í sirka fimm mínútur.


2. Næst bætti ég gulrótunum útí og hrærði þeim vel saman við

3. Eftir sirka mínútu bætti ég grænmetissoðinu útí og beið þar til suðan kom upp.

4. Þegar súpan var byrjuð að sjóða lækkaði ég hitann og leyfði henni að malla í hálftíma


5. Þegar gulræturnar voru orðnar vel mjúkar slökkti ég undir, hellti kókosmjólkinni útí og kryddaði með salti og pipar eftir smekk. 

6. Ég setti súpuna í blandarann og blandaði þangað til hún var orðin silkimjúk. Ef þið eigið töfrasprota mæli ég með því að nota hann frekar en blandari virkar mjög vel. 




Hummus:
2 bollar kjúklingabaunir
2 rifnir hvítlauksgeirar
1/3 bolli tahini
Safi úr einni sítrónu

2 msk ólífuolía
Vatn eftir þörf
Salt eftir smekk
-Hægt er að bæta við einhverju góðu kryddi ef maður vill. Persónulega finnst mér mjög gott að setja nokkra dropa af tabasco sósu eða örlítið af reyktu paprikukryddi.


Ég skellti þessu öllu í matvinnsluvélina/blandarann og blandaði þangað til ég fékk þá áferð sem ég vildi. Ég varð að bæta smávegis af vatni útí því ég vil ekki hafa hummusinn minn of þykkan. Það er best að smakka bara til og prófa sig áfram.

Helga María