Labels

Sunday, November 2, 2014

Indverskur linsubaunaréttur


Í gær var alþjóðlegi vegan dagurinn. Í tilefni dagsins skellti ég mér í smá grænmetishitting með yndislegum vegan vinkonum. Þegar heim var komið var ísskápurinn frekar tómur. Ég tók út allt það grænmeti sem ég átti, dró poka af linsubaunum upp úr skúffunni og tuttugu mínútum seinna hafði ég útbúið æðislegan og næringaríkan linsubaunarétt.


Hráefni: 
1 lítil sæt kartafla
2 gulir laukar
4 gulrætur
1 msk rifið engifer
pressaður hvítlauksgeiri
1,5 bolli linsubaunir
1 líter grænmetissoð (Ég sýð yfirleitt vatn í hraðsuðukatli og blanda grænmetiskrafti frá Sollu útí það)
1 tsk túrmerik
2 tsk garam masala
Salt og pipar eftir smekk.

1. Ég byrjaði á því að skera niður grænmetið og setja í pottinn ásamt örlitu vatni og leyfa grænmetinu að mýkjast aðeins í nokkrar mínútur. Ef þið viljið steikja það uppúr olíu er það ekkert mál, ég reyni bara að nota olíu sem minnst.

2. Á meðan grænmetið var að hitna aðeins skolaði ég linsubaunirnar og leyfði þeim að liggja í bleyti í smá stund.

3. Eftir nokkrar mínútur bætti ég linsubaununum, grænmetissoðinu, engiferinu, hvítlauknum og kryddunum útí og leyfði þessu að malla í sirka tuttugu mínútur.
Ef ykkur finnst ekki nóg krydd þá er ekkert mál að bæta því útí. Betra að byrja á því að setja of lítið en of mikið.

Helga María